Hola ;)
11.06.2009 13:49:24 / Hrund

36

Það var smá breyting með skólann svo síðasti dagurinn var núna á mánudaginn. Eftir tímann þá buðu foreldrar frönsku konunnar okkur í mat, ótrúlega flott, fjögurra rétta máltíð, mega góð önd í aðalrétt og þetta var bara ótrúlega gott :) Og svo eru þau með píanó þarna í húsinu og ég fékk að spila á það, ég var farin að sakna þess mikið að fá að spila :)
Svo er ég bara búin að vera æfa mig á fullu í golfi síðustu daga og svo var ég í golfprófi í morgun, og það gekk bara ótrúlega vel :) þannig að loksins er ég komin með forgjöf ;)
Svo er Örvar frændi minn að koma í kvöld jei :)

Svo er 30 stiga hiti núna og sól úffff er að deyja úr hita :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2009 13:46:30 / Hrund

Mimame

Um daginn í tíma þá vorum við að gera verkefni þar sem að við áttum að svara einhverjum spurningum í bókinni. Vorum að æfa orðaforðann svo svörin okkar þurftu ekkert endilega að eiga við um okkur, bara svar. Svo fékk ég spurningu "Af hverju ertu að gráta" og ég hugsaði með mér af hverju grætur maður. Og mér datt ekkert í hug. Nema svo fór ég allt í einu að hugsa um Friends og hvernig Rachel fór að gráta þegar hún varð þrítug hehe. Svo svarið mitt varð "af því ég er að verða gömul". Og svo leit ég upp og þá voru þær báðar með mjög skrítinn svip á sér, s.s. kennarinn og hinn nemandi sem báðar eru að nálgast fimmtugt. Þeim fannst það ekkert grátlegt að eldast. Og ég áttaði mig á því að þær horfa ekki á Friends og voru ekkert að skilja að þetta var svona kaldhæðnislegt og djók svar hjá mér :) Svo ég reyndi að útskýra þið vitið að þetta væri svona djók og kennarinn minn reyndar hló smá en þessi franska hló ekki :S Ég held að hún hafi bara tekið því eins og ég væri að segja að hún væri gömul og það væri glatað. Anyway það eina sem var í stöðunni hjá mér var að finna eitthvað nýtt svar strax og þá kom ég með "af því að kærastinn minn hætti með mér" og þá loksins brostu þær báðar og fannst þetta mjög rökrétt svar :)

Svo er ég búin að finna ótrúlega gott bakarí hérna, sem er þýskt og selur alveg sjúklega góðar kökur :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2009 11:07:37 / Hrund

Que pasa?

Núna er level 4 hálfnað hjá mér og ég verð nú að segja að mér finnst þetta námskeið miklu skemmtilegra en level 3. Munar rosalega að vera í heimahúsi, allt miklu afslappaðara og við spjöllum miklu meira í tímunum um svona daglega hluti. Svo mun þetta level klárast 5.júní og þá ætla ég bara að slappa af hérna á spáni. Örvar frændi minn kemur til mín vikuna eftir að námskeiðið klárast og ég hlakka mikið til.

Ég finn nú samt alveg fyrir því hvað ég er farin að sakna Íslands og allra heima :)
Er búin að panta mér far heim fimmtudaginn 25.júní :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2009 16:03:57 / Hrund

24

 

Nú er level 3 búið í skólanum og ég hafði hugsað mér að halda áfram á næsta námskeiði. En svo kom upp að kennarinn minn var rekin, sem var pínu sjokk þar sem að hún er búin að vera að byggja þetta nám upp með okkur og vissi alveg hvað ég og hinn nemandinn, s.s. franska konan, kunnum. Við fengum nýjan kennara síðasta daginn á námskeiðinu og það var ekki að gera sig. Maður skildi ekki neitt og þetta var bara allt annað. Svo ég og franska konan ákváðum að hringja í gamla kennarann okkar og spurja hvort hún hefði áhuga á að kenna okkur utan skólans og sem betur fer sagði hún já. Svo núna hittumst við heima hjá frönsku konunni (sem btw býr í alveg ótrúlega flottu húsi), og við sitjum út í garði og lærum spænsku. Ég verð nú að segja að mér finnst þetta bara miklu skemmtilegra og miklu afslappaðara :) Þannig að nú er ég byrjuð á level 4.

Svo átti ég afmæli í síðustu viku og dagurinn var bara ótrúlega fínn. Þar var frídagur þar sem nýja námskeiðið byrjaði ekki fyrr en á fimmtudeginum, þannig að ég fékk að sofa út sem var mjög sweet. Fór svo á uppáhaldsveitingastaðinn minn Alejandro‘s og fékk með hádegismat. Rölti svo niðrá strönd og labbaði meðfram strandlengjunni í klukkutíma. Síðan var bara horft á tv og talað við fólk á skype :)

Síðan er ég búin að vera á fullu í golfinu, þetta er ekkert smá skemmtileg íþrótt og ég hlakka mikið til þegar ég verð orðin nógu góð til að spila á sjálfum vellinum. Í gær var ég í tíma og var að spila á vellinum og það voru fullt af íkornum og kanínum sem voru svoooo sætir :) Svo eftir tímann leyfði golfkennarinn minn mér að koma með sér og búa til nýjar holur á golfvellinum, þannig að ég hef búið til 18 holur ;)

Síðan er bara Eurovision á næsta leiti, finnst svoldið skemmtilegt að horfa á það :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 19:04:04 / Hrund

Sól sól skín á mig

Jæja sorry sorry :) smá svona bloggpása.

Síðasti mánuður er búinn að vera mjög skemmtilegur. Systir hennar mömmu og dóttir hennar komu hingað og svo komu líka mamma og pabbi og það var ótrúlega gaman að hafa þau öll.

Svo komu Berta og fjölskylda líka sem var líka mjög skemmtilegt ;) Við Berta kíktum á smá djamm hérna, mjög steikt en afar skemmtilegt. Hittumst heima hjá mér að fá okkur nokkra drykki ásamt snakki 2008. Svo var kíkt niðrí bæ. Á fyrsta barnum sem við fórum á ætlaði Berta að fá bacardi raspberry og barþjóninn bara what do you want aspirin? Alveg steiktur. Svo sem betur fer náði konan sem var að vinna þarna því sem við vorum að biðja um. Svo eftir smástund þá stendur allt í einu barkonan fyrir framan okkur og starir á okkur.... og svo sagði hún, af hverju pöntuðu þið ekki bara á íslensku... gaman að því.  Jæja svo fórum við á næsta bar og erum rosalega uppteknar í samræðum. Svo eftir dágóða stund inná þessum stað þá tók Berta allt í einu eftir því að við sátum fyrir framan súkkulaðiköku, og kampavínsflösku, og fullt af kampavínsglösum, og fyrir ofan okkur voru fullt af blöðrum og já, við vorum s.s. búnar að crasha eitthvað afmæli. Svo við bara kláruðum kokteilinn og drifum okkur út hehe svo kíktum við á annan bar og þá vorum við spurðar um skilríki, og við eitthvað uuu við erum sko 24 ára og dyravörðurinn horfði á okkur og hristi svo bara höfuðið og bað um skilríkin. Og í alvöru það voru svona 16 ára krakkar þarna inni. Anyway. Kvöldið var mjög skemmtilegt :)

Svo er skólinn bara á fullu er svona hálfnuð með level 3 og þetta er að þyngjast rosalega. Ótrúlegt hvað spánverjar gera mikið við þessar sagnir sínar. Það eru endalausar beygingar á þessu. Svo er ég líka búin að fara í nokkra golftíma, mjög skemmtilegt.

Sólin skín og það er mjög heitt, svona á bilinu 20-25 stiga hiti þannig að maður getur ekki kvartað ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.03.2009 12:35:57 / Hrund

Rigning

Ég ætlaði að fara í golftíma í gær en því miður þurfti að cancel-era tímanum því það var svo mikil rigning :( Ég held ég hafi bara ekki upplifað aðra eins rigningu, það bara hætti ekki að rigna. Ég þurfti að hlaupa út í svona 3min til að bjarga blómapottunum og þar var bara eins og maður hefði tekið góða sturtu. Svo eru engin niðurföll í götunni minni svo það myndaðist bara fljót, mjög spes :) Ég sem ætlaði að þvo bílinn minn í gær en ég slepp víst við það hehe ;) því miður er spáð svona rigningu út alla vikuna, en þá verður maður bara að nýta tímann vel og læra ;)

Svo breyttist tímamunurinn aðfaranótt sunnudags þannig að nú er kominn tveggja tíma munur.

Í vikunni er systir hennar mömmu og fjölskylda að koma svo það verður mjög gaman, einnig er Berta  væntanlega til Torrevieja og Magga að fara til Benidorm :) hlakka mikið til :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.03.2009 14:01:53 / Hrund

Vondi spánverji

Ég var að keyra á golfvöllinn í vikunni og fór einhverja leið sem er svona inní hverfinu, styttri leiðin sem sagt. Allaveganna svo kem ég að svona stuttri götu, kannski 30m á lengd og það voru alveg tvær götur en önnur gatan virtist vera bara svona fyrir húsin sem voru þarna, svona eins og bílastæði. Svo ég keyrði hina götuna og svo allt í einu þá kom bara bíll á móti mér, þá var ég ÓVART að keyra á móti umferð :S allaveganna þetta var sko alveg tvíbreið gata, en annar helmingurinn var bara notaður sem bílastæði. Okey svo ég bara beygði bara til hliðar inná þessi bílastæði og ekkert vandamál. En nei nei þá stoppaði gamli kallinn sem var að keyra á móti mér, skrúfaði niður gluggann og öskraði á mig á spænsku. Ógeðslega vondur maður. Ég skildi svona mest megnið sem hann öskraði sem var eitthvað á þessa leið „Hvað er að þér að keyra vinstra megin, ertu eitthvað heimsk (og svo sló hann í höfuðið á sér), þið bretar eruð svo ógeðslega heimsk, þú ert fáviti“. Svo kom einhver runa í viðbót sem ég skildi ekki en það var eitthvað á þessa leið. Og þar sem ég er ekki ennþá búin að læra að rífast á spænsku þá var bara eitt sem ég gat sagt og það var sorry. Í fyrsta lagi er ég ekki Breti og auðvitað áttaði ég mig á því að ég keyrði vitlausu megin, en ég fór alveg til hliðar og það varð ekkert vandamál og til hvers þá að vera að hafa fyrir því að öskra á mann. Ég bölva þessum ljóta spánverja.

En já svo er námskeiðið mitt að klárast í næstu viku og þá erum við að klára level 2. Næsta level byrjar svo sem bara daginn eftir svo það er engin pása :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2009 14:15:16 / Hrund

Fallas de San José

Jæja lítið búið að ske hérna nema maður er bara á fullu í skólanum :) námið er samt búið að þyngjast töluvert en þetta er samt mjög gaman. Svo á morgun er einhver San José dagur sem þýðir sem sagt að það er frídagur hjá öllum hjá Spáni ;) býst við því að það verði bara slappað þá af á morgun og legið í sólbaði ;)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2009 14:22:39 / Hrund

Papel hoven

Síðasta helgi var æðisleg, veðrið var sjúklega gott, örugglega svona 25°hiti og engin ský á himni. Fór á markaðinn hérna neðar í götunni á laugardagsmorgun, keypti mér nammi og fullt af appelsínum. Svo var farið heim og drukkið Sangría (og auðvitað sett appelsínurnar í það) og legið í sólbaði. Er alveg að worka tanið hérna ;) Ég þarf samt að fara að nota sólarvörn nr.30 svo ég dökkni ekki meira, tel mig vera með nægan lit núþegar hehe.

Annars fengum við nýjan bekkjarfélaga síðasta mánudag sem er kall frá Þýskalandi sem er svona áttræður. En hann var bara með okkur í tvo daga þar sem að hann var ekki með nógu góða málfræði til að halda í við okkur hin. Svo nú erum við bara aftur chicas.

Svo er ég búin að redda þessu með bílastæðavandamál þarna hjá skólanum. Ég fann stað sem er efst upp í götunni og þar er alltaf nóg af stæðum. Þarf svo bara að labba í svona 5-7 min til að komast í skólann. Maður hefur bara gott af því að labba smá. Ég hreinlega nenni ekki að vera að rúnta þarna um heillengi á morgnana og reyna að fá stæði einhvers staðar nær. T.d. á mánudaginn þá var ég að rúnta þarna heillengi um að reyna að finna stæði nálægt skólanum, fann alveg nokkur stæði, gerði nokkrar (okey alveg þónokkuð margar) tilraunir til að bakka í stæði en það var bara ekki að gera sig :S Þessar mjóu götur þarna eru ekki að láta mann lúkka vel á bílnum ;) hehe

Fór að versla í matinn og þar sem allur matur er náttla þýddur yfir á spænsku þá er stundum svoldið erfitt að versla því maður veit ekkert  hvað er hvað og matvörubúðirnar eru svoldið stórar. En jæja mér tókst þó á endanum að finna það sem ég var að leita að, hveiti, ger og bökunarpappír :) Svo fór ég heim og bakaði mér pizzu ;) namm namm

Ætla að reyna að vera svoldið í hollustu, ekki borða alltaf einhvern skyndibita vitleysu, þó svo það sé auðvitað freistandi að skella sér á McDonalds eða Burger King sem er hér rétt hjá. Samt hef ég ekki séð neina svona aðra skyndibita staði hérna, enginn KFC, Subway eða Star Bucks. Star Bucks skiptir kannski ekki öllu máli fyrir mig þar sem ég drekk ekki kaffi eins og er en það væri þó fínt að hafa KFC hérna ;)

Okey nú er ég búin að tala allt of mikið um mat, það er kannski spurning um að fara að fá sér eitthvað að borða :)


» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 90759
Klukkan
Könnun
Hvað ert þú?